Í gærkvöldi áttust við Meistaraflokkar SR og Bjarnarins í æði spennandi leik í Egilshöll. Fyrirfram var vitað bæði lið höfðu raunhæfan möguleika á því að tryggja sér sæti í útslitum gegn SA með sigri, þó að það hafi verið meira á brattan að sækja fyrir Bjarnarmenn en SR-inga. Vel var mætt í Egilshöll, hvergi laust sæti og fólk stóð með glerinu nær allan hringinn.
Í fyrsta leikhluta virtist sem SR-ingar væru ekki mættir í hús en Bjarnarmenn komu til leiks einsog um síðasta leik lífsins þeirra væri að ræða. Bjarnarmenn náðu að skora alls 6 sinnum án þess að okkar menn næðu að svara fyrir sig og verður það að teljast ansi sérstök staða í deild sem þessari.
Í annari lotu voru SR-ingar loks mætir til leiks og náði Daniel Kolar að minnka muninn fyrir SR-inga með tveimur góðum Power Play mörkum. Hjörtur Geir jók en á forrystu Bjarnarmanna með marki rétt fyrir lok lotunnar. Staðan var því orðin 7 - 2 Bjarnarmönnum í vil og SR-ingar farnir að stara framan í þá staðreynd að Bjarnarmenn voru ekki komnir í neinn dúkkuhokkíleik og þeir þyrftu að taka á öllu sínu ef þeir ætluðu að landa sigri í þessum leik.
Birgir J. Hansen bætt en betur fyrir Bjarnarmenn og kom þeim í ansi þægilega stöðu 8 - 2. SR-ingar voru hinsvegar ekki alveg af baki dottnir og þeir félagar Gauti Þormóðsson og Þórhallur Viðarsson minnkuðu en á muninn með sitthvoru markinu. Staðan því orðin 8 - 4 og húsið nötraði af fagnaðarlátum og hvatningarhrópum frá áhorfendum. SR-ingar reyndu á lokamínútum leiksins að ná yfirhöndinni í leiknum með því að taka Ævar Þór Björnsson úr markinu og auka enn á sóknarþungan en pökkurinn barst til Bjarnarmansins Gunnars Guðmundsonar sem fullkomnaði þrenunna sína og skoraði í tómt markið og innsiglaði 5 marka sigur Bjarnarmanna.
Það er þá staðreynd að Bjarnarmenn fara í úrslitakeppnina á móti SA núna strax í næstu viku, 4.mars nánar tiltekið. Björninn hefur ekki spilað til úrslita síðan 2001. Sú úrslitakeppni hefur verið minnst sem ein af mest spennandi úrslitakeppni í íslenskri íshokkísögu þegar Bjarnarmenn sem voru þá þéttskipaði af erlendum leikmönnum, aðalega rússum, og SA þá einnig með þéttskipað lið af erlendum leikmönnum, aðalega kanadamenn en þó með íslenska leikmenn í milli, náðu því að spila 5 leikja úrslitakeppni þar sem Björninn vann fyrstu tvo leikina nokkuð sannfærandi en SA vann næstu þrjá í æsispennandi leikjum.
Það er vonandi að Bjarnarmenn og SA muni bjóða hokkíáhugafólki uppá jafn spennandi hokkíleik og var spilaður í gærkvöldi því það af svo sannkallaður úrslitaleiksbragur af honum.
Hægt er að sjá myndasyrpu úr leiknum á vefnum mbl.is
Myndina tók Ómar hjá MBL.
HPÞ
Til baka








