Núna um helgina verður 4.flokksmót í Egilshöll. Einsog staðan er núna þá eru Akureyringar að rýna í kortinn og reyna að finna smugu til að koma suður til Reykjavíkur á þetta mót. Þetta skýrist væntanlega þegar líður á daginn. Næsta sunnudag verða kvennalandsliðsæfingar á ístíma meistaraflokks, sem er frá kl.11:45 til 12:45, og er áhugasömum bent á að koma og horfa á þetta föngulega lið við æfingar.
Einnig um helgina verða tveir 2.flokks leikir spilaðir í Laugardalnum. Verða það lið SR og SA sem leika þar bæði föstudagskvöld, kl.20:30, og laugardagskvöld, kl.18:30.
Einnig um helgina verður skorið úr því hvaða lið verður krýndur Ólympíumeistari í íshokkí karla þannig að það verður nóg um íshokkí um helgina.
Til baka








