Aðalfundur íshokkídeildarinnar verður haldinn laugardaginn 20. mars kl. 13. Við hvetjum alla foreldra til að mæta, jafnt foreldra eldri sem yngri iðkenda.
Þetta verður ekki langur og leiðinlegur aðalfundur, til þess eru SR-ingar allt of skemmtilegir. Það er nefnilega fátt mikilvægara en að okkur takist, barnanna okkar vegna, að halda uppi blómstrandi starfi í klúbbnum okkar. Mörg okkar sem sitjum nú í stjórn höfum hug á að halda áfram (enda er hópurinn skemmtilegur!). Við þurfum þó fleiri foreldra í lið með okkur, bæði í stjórn og önnur störf í deildinni, og hvetjum áhugasama til að gefa sig fram sem fyrst eða senda tölvupóst á helgipall@skautafelag.is.
Fyrstu kemur, fyrstur fær! Munið að virk þátttaka foreldra skilar sér í meiri áhuga iðkenda!
Til baka








