A og B liđ hjá körlum og liđ í kvennaflokki

19.07.2010

Ný verið tilkynnti stjórn SR inn A og B lið í Meistaraflokki Karla inn til ÍHÍ.  Björninn og SA hafa gert slíkt hið sama og verður því spiluð 6 liða deild á komandi tímabili.  Þetta mun hafa miklar og jákvæðar breytingar í för með sér í mótafyrirkomulagi deildarinnar þar sem fleirri leikmönnum gefst kostur á að komast í krefjandi leiki á tímabilinu.

Stjórn SR tilkynnti inn, í fyrsta skipti síðan 2002, kvennalið til þátttöku í Íslandsmóti og eru það tímamót hjá SR.  Margar frískar stúlkur mættu á æfingar á síðasta tímabili og vonir standa til að þeim muni fjölga á næsta ári og byggja upp þetta nýja lið innan SR á komand árum.


Til baka




HaninnSaffran 10% afsláttur