Frá 3.maí til 4.júní mun Richard Tahtinen, aðalþjálfari SR, vera með skemmtilegar og spennandi sumaræfingar fyrir félagsmenn SR-hokkí.
Þessar æfingar eru ætlaðar fyrir leikmenn sem eru eru í 7,6,5,4,3, MFL-B og kvennaflokk.. Æfingarnar verða 3 til 4 sinnum í viku (1 sinni á ís á viku). Nánari dagskrá er hægt að sjá með því að smella hér.
ATH:Æfingar verða í kringum Skautahöllina í Laugardal og víðar. 7,6,5,4,3.flokkur verða 1 sinnum á ís í maí, aðrir flokkar verða 3 sinnum (MFL B og Kvennaflokkur).
Verðinu hefur verið stilt í verulegt hóf eða aðeins kr.7500,- fyrir 7,6,5,4 og 3.flokk (sama og í fyrra) og kr.9.500 fyrir kvennaflokk og MFL-B þannig að það er um að gera að skrá sig .... sem fyrst.
Skráning er hafin og hægt er að skrá sig með því að senda tölvupóst á netfangið sumarskoli@skautafelag.is og setja skal í tölvupóstinn eftirfaraandi atriði:
- Nafn iðkanda
- Kennitölu iðkanda
- Nafn forráðamanns
- Símanúmer forráðmanns
- Netfang forráðamanns
Sumaræfingarnar kosta kr.7500/9500 og hægt er að greiða það inná reikning félagsins
Bknr: 0101-26-22309 (Landsbankinn, Austurstræti)
kt. 561092-2309 og senda rafræna kvittun á sumarskoli@skautafelag.is með nafni iðkenda sem tilvísun.








