SR-hokkí ætlar um þessi jól að hvetja félagsmenn til að safna dósum, plast og gler flöskum yfir hátíðirnar. Íshokkídeildin mun útvega mannskap sem mun sækja dósapokana til félagsmanna og sjá um talningar. Það eina sem félagsmenn þurfa að gera er að skrá sig hér á vefnum og Íshokkídeildin kemur til félagsmanna og sækir dósapokana þráðbeint eftir áramót eða samkvæmt beiðini (svona ef ske kynni að dósafjöldinn yrði of mikill áður).
Skráðu þig hérna á vefnum strax í dag og leggðu þínu félagi lið.








