Nánar um íshokkí

Íshokkí er mjög hröð íþrótt og mikið um pústra og byltur, sérstaklega í eldri flokkum. Þrátt fyrir þetta eru meiðsli sjaldgæf enda eru leikmenn vel varðir í búningi sínum. Þeir sem æfa íshokkí verða að klæðast löglegum íshokkíbúningi, bæði á æfingum og í leikjum. Hann samanstendur af hjálmi með grind, hálshlíf, brynju, olnbogahlíf, hönskum, bólstruðum buxum, hnéhlífum, sokkum og skautum. Flestir eiga svo treyju félagsins en hana er hægt að panta á skrifstofu félagins (hún er t.d. vinsæl afmælis- eða jólagjöf!). Félagið á líka treyjur sem leikmenn fá lánaða í leiki. Allir verða þó a.m.k. að eiga æfingatreyju. Mikilvægt er að byrja á því að kaupa sér skauta sem eru nokkuð góðir (ekki notast við leiguskauta lengi) en það flýtir fyrir árangri á ísnum – fáið ráðleggingar hjá skautakennaranum. Byrjendur í íshokkí kaupa sér fyrst og fremst notaðan útbúnað í upphafi sem má fá fyrir 10 – 15 þúsund. Smátt og smátt, er getan vex á ísnum, kaupa þeir svo gjarnan nýrri útbúnað.





HaninnSaffran 10% afsláttur