Mikið fjör var þegar framhaldsnemendur í listhlaupadeild buðu nemendum úr Öskjuhlíðarskóla á ísinn. Krakkarnir stóðu sig frábærlega vel og augljóst var að allir skemmtu sér mjög vel. Mikið var hlegið, spjallað og meira að segja sungið. Heimsóknin var tengd fjáröflun fyrir ferð í skautabúðir erlendis í sumar, og iðkendur þakka öllum styrktaraðilum kærlega fyrir stuðninginn. Smellið hér til að skoða fleiri myndir frá þessari skemmtilegu heimsókn.
Til baka







