Okkur í stjórn foreldrafélagsins langar að koma nokkrum atriðum á framfæri til ykkar foreldra varðandi hlutverk okkar, verkefni og skipulag.
Á foreldrafundi, með stjórn LSR og yfirþjálfara, í september síðastliðnum voru sjálfboðaliðar valdir úr hverjum hóp til að sitja stjórn foreldrafélagsins. Tilgangur stjórnar foreldrafélagsins er að vera tengiliður á milli stjórnar LSR og foreldra iðkenda, stuðla að félagslegum samskiptum iðkenda og standa að fjáröflun til að standa straum af kostnaði vegna félagsstarfs.
Okkur langar að vekja athygli á því að það er ekki eingöngu hlutverk foreldranna í stjórninni að taka þátt í fjáröflun, heldur á hún að vera sameiginlegt verkefni allra foreldra, en skipulagning er í höndum stjórnarinnar.
Á komandi vetri eru sex viðburðir á döfinni hjá í Skautahöllinni í umsjá LSR, það eru:
3.-5. nóv Haustmót ÍSS
18. des Jólasýning LSR
19.-21. jan Íslandsmeistaramót, Unglingamót, Vetrarmót ÍSS
Feb. 2007 Innanfélagsmót
Mars 2007 Reykjavíkurmót
Apríl 2007 Vorsýning LSR
Fjáröflun foreldrafélagsins fer nær eingöngu fram með sölu á veitingum og smávöru á þessum viðburðum. Til að þetta verði auðvelt og gangi vel fyrir sig er nauðsynlegt að sem flestir foreldrar leggist á eitt. Við viljum biðja foreldra um að skrá sig á einhvern þessara viðburða, þ.e. að það megi hafa samband við viðkomandi til aðstoðar. Aðstoð getur falist í því að koma með bakaða köku, standa við söluborð í klukkutíma, aðstoða við frágang o.s.frv. Mest um vert er að þetta verði ekki íþyngjandi fyrir neinn. Úr hverjum hóp er eitt foreldri í stjórn og langar okkur að biðja foreldra að senda póst á fulltrúann úr hópi þíns barns og gefa upp á hvaða viðburð þú gætir hugsað þér að leggja hönd á plóginn (sjá nafnalista hér fyrir neðan), þetta er ekki skuldbinding, það er langt í suma af þesum viðburðum og við gerum okkur fyllilega grein fyrir að það getur verið erfitt að sjá fyrir hvort maður sé fær um að taka þátt eða ekki. En það er engu að síður gott fyrir okkur að geta kortlagt veturinn að einhverju leyti og því biðjum við ykkur um að svara sem fyrst.
Í hvað sjóður foreldrafélagsins fer veltur á því hversu stór hann er. Fyrir liggur að foreldrafélagið muni kosta að hluta jólaskemmtun og lokahóf fyrir iðkendur LSR. Frekara starf veltur á því hvað fjárhagur leyfir. Borið hefur á því að fók hafi viljað greiða félagsgjöld til félagsins og standa fyrir utan fjáraflanir, okkar skilaboð til þeirra eru þau að sjálfsögðu er öllum frjálst að styðja félagið, það er foreldrum í sjálfsvald sett hvort með hvaða hætti það vill koma að félaginu, en við hvetjum alla til að taka þátt. Fyrir þá sem vilja er reikningsnúmer félagsins 0515-14-606405, kt 410897-2029.
Haustmót ÍSS 3.-5. nóv 2006
Það vantar enn nokkra aðila til að aðstoða á haustmótinu á vegum mótstjórnar. T.d. er um að ræða að það vantar unga skautara til að vera blómabörn og hlauparar. Þetta getur verið upplagt tækifæri til að leyfa ungum skautara sem ekki er að keppa að taka þátt í mótinu með óbeinum hætti og um að gera fyrir foreldrið þá að koma líka og leggja sitt af mörkum. Einnig vantar hliðverði, fólk í móttöku o.fl. Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt eru beðnir um að hafa beint samband við mótsstjóra gutti@centrum.is
Með von um gott samstarf í vetur,
Stjórn foreldrafélagsins
A hópur:
Hrönn - gunnarlb@mi.is
B hópur:
Linda - Klinda46@hotmail.com
Anna Bára - Fsel12@hotmail.com
C hópur:
Gerður - gerdur7@hotmail.com
D hópur:
Kristinn - kjonsson@internet.is
E hópur:
Kolbrún - kollaosk@hive.is
Kristín - k@einrum.com
F hópur:
Sigga - gusi@simnet.is
Til baka







