Afreksstefna ÍSS

26.04.2007

Á síðasta skautaþingi kynnti skautasambandið hugmyndir um að setja á fót afrekshóp.  Í vetur var haldinn kynningarfundur á afreksstefnunni fyrir stjórnir félaganna og í byrjun apríl fengu félögin boð um að senda skautasambandinu lista yfir þá skautara sem uppfylltu, að mati þjálfara félagsins, þær kröfur sem settar voru fram.   Þessum skauturum hefur nú verið boðið á námskeið á vegum sambandsins fyrstu helgina í maí og tilgangur námskeiðsins er að velja úr hópnum þá skautara sem munu tilheyra afrekshópnum næsta vetur. 

Nánari upplýsingar um afreksstefnuna er að finna á heimasíðu skautasambandsins.

Laugardaginn 4. maí kl. 14:00 – 15:30 verður fundur í Egilshöllinni þar sem Maria Mclean mun vera með fyrirlestur.  Allir foreldrar/forráðamenn þeirra barna sem taka þátt á námskeiðinu eru hvattir til þess að mæta og eins er öllum velkomið að mæta sem hafa áhuga á því að kynna sér í hverju það felst að byggja upp afreksskautara.

 

 

 


Til baka