Haustmót á Akureyri 3. – 5. október 2008.
Þá er að koma að haustmóti og skautarar þurfa að hafa sitt á hreinu.
Farið verður af stað frá Skautahöllinni kl. 12 á föstud. 3. okt.
Mæting 11:30 í Skautahöllina.
Krakkarnir þurfa að vera vel mettir þegar lagt verður af stað, eða taka með sér nesti í rútuna.
Gist verður á gistiheimilinu Stórholti, þar eru uppbúin rúm.
Þjálfarar sem fylgja hópnum eru Guillaume og Ragnhildur, en farastjóri er Gígja Sigurðardóttir, mamma Freyju Magnúsd. í 2B, auk þess sem Bergljót B. Guðmundsd., mamma Guðmundar í 2B fer með og aðstoðar, m.a. á matmálstímum.
Áætluð heimferð á sunnud. er kl. 14:00.
Skautarar mega hafa með sér pening til að kaupa sér einhverja næringu ( t.d. heitt kakó), en sælgæti er ekki leyfilegt fyrr en á sunnudag, þegar skautarar hafa lokið keppni.
Síminn hjá Gígju er 899 7989.
Munið svo að taka með hlý föt til að klæðast þegar verið er í klappliðinu
Til baka
Fréttir







