RIG dagur tvö

16.01.2011

Mótið gekk mjög vel og stóðu allir keppendur sig með prýði.  Mikið af myndum voru teknar um helgina og fleiri munu eflaust bætast við.  Smellið hér til að skoða.  

 

Sigurvegarar RIG mótsins í listhlaupi á skautum með flest stig eru systkinin Peter Reitmayer með 130,47 stig og Ivana Reitmaverova með 94,07 stig frá Slóvakíu.  Ivana keppir í Senor flokki og Peter í Junior flokki.  Þau hafa æft á Íslandi í vetur, en móðir þeirra er þjálfari listhlaupadeildar Skautafélags Akureyrar.  Það er gífurlegur fengur að fá svo sterka keppendur til keppni hér á landi, og hvað þá að hafa þau líka á æfingum!  

 

Íslensku keppendurnir stóðu sig mjög vel og í dag náðum við sætum bæði í Novice, Novice B og Senior B.  Í Novice flokki var Agnes Dís Brynjarsdóttir, Skautafélaginu Birninum, í öðru sæti og Heiðbjört Arney Höskuldsdóttir, Skautafélagi Reykjavíkur, í þriðja sæti.  Í Novice B áttu íslendingar öll sætin, í fyrsta sæti var Hrafnhildur Lára Hildudóttir, Skautafélagi Akureyrar, í öðru sæti var Brynhildur Dóra Borgarsdóttir, Skautafélaginu Birninum, og í þriðja sæti var Hekla Hallgrímsdóttir, Skautafélaginu Birninum.  Í flokki Senior B var Guðbjörg Guttormsdóttir, Skautafélagi Reykjavíkur, í fyrsta sæti.  


 

Sjá öll úrslit mótsins.



Til baka