Tveir iðkendur frá SR voru fulltrúar Reykjavíkur á Alþjóðaleikum ungmenna í vetraríþróttum 2011 sem haldið var í Kelowna í Kanada dagana 26.-31. jan s.l. Leikarnir eru haldnir annað hvert ár undir verndarvæng Alþjóðaólympíunefndarinnar og var öll umgjörð þeirra í Kanada til fyrirmyndar. Þær Júlía Grétarsdóttir og Þuríður Björg Björgvinsdóttir fóru ásamt mæðrum sínum sem jafnframt voru fulltrúar Reykjavíkur í þeim fjölmörgu viðburðum sem haldnir voru í tengslum við leikana. Keppt var í krullu, íshokkí, alpagreinum, norrænum greinum, snjóbrettum og listhlaupi. 21 keppandi var í stúlknaflokki í listhlaupi frá Kóreu, Litháuen, Kanada, Sviss, USA og Íslandi og gekk stelpunum okkar ágætlega. Þuríður endaði í 12. sæti og Júlía í 17.
Margir komu í höllina til að fylgjast með og hópaðist í kring um Íslendingana áhorfendur af íslenskum ættum sem komnir voru til að hvetja stúlkur frá "gamla landinu". Á myndinni eru stúlkurnar með Breanne Bergvinson keppanda í listhlaupi frá West Kelowna í Kanada sem á íslenskan afa.
Stjórn Listhlaupadeildar SR óskar þeim innilega til hamingju og gaman að heyra að þær áttu góða ferð, sem var löng og ströng.
Til baka







