Sumarskautaskóli SR – listhlaupadeild
*
Dagskrá vika 13 – 17 ágúst
!! athugið , skauta og hjálm er hægt að fá lánaða í höllinni,
Námskeið fyrir hádegi mánudagur – föstudags.
Mæting 09:00
Ístími kl. 09:40 - 10:25
Afís, nesti, fræðsla og leikir 10:25-12:00
*
Námskeið eftir hádegi mánudagur - föstudags
Mæting 12:40, farið á ís 13:10 – 13:55
Afís,nesti, fræðsla og leikir 14:10-16:00.
*
*
Kristín Ómarsdóttir verður með með umsjón yfir sumarskautaskóla SR-listhlaupadeildar.
Helstu upplýsingar um námskeiðið.
Fatnaður á ísæfingum:
-Hlýjar og góðar buxur, t.d úr flís - helst þröngar (því víðar geta flækst fyrir - ALLS EKKI gallabuxur)
-Hlý og góð peysa - mikilvægt að vera vel klædd undir líka, langermabol eða ullarbol
-Úlpa er að sjálfsögðu í lagi líka, passa bara að hún sé ekki of stór eða hefti hreyfingar - snjógalli er líka í lagi fyrir þau allra yngstu ef fólk vill.
-Húfa, eyrnaband eða buff sem passar undir hjálm (það er skylda að hafa hjálm - hægt að fá lánaða í skautahöllinni)
-Vettlingar - mjög mikilvægt !
-Og að sjálfsögðu skautar, koma með sjálf eða hægt fá lánaða í höllinni.
Afísæfingar:
-Góðar buxur sem hefta ekki hreyfingu (geta verið bara sömu og á ísæfingu)
-Hlý og góð peysa (getur verið bara sama og á ísæfingu)
-Íþróttaskór,strigaskór. Bara ekki stígvél eða stórir kuldaskór - verður að vera hægt að hoppa og skoppa í :)
- Ef veður er gott verða æfingar úti, klæðnaður í samræmi við það.
Nesti:
T.d. djús, samloka, jógúrt, ávextir og grænmeti. Sætabrauð og nammi er ekki æskilegt.
Það er fínt að hafa líka í töskunni vatnsflösku.
Ef það eru einhverjar spurningar, endilega sendið póst á list(at)skautafelag.is
Til baka







