Foreldrafélag LSR var endurvakið í vetur og er komið af stað með öfluga starfsemi. Tilgangur stjórnar foreldrafélagsins er að vera tengiliður á milli stjórnar LSR og foreldra iðkenda, stuðla að félagslegum samskiptum iðkenda og standa að fjáröflun til að standa straum af kostnaði vegna félagsstarfs.
Netfang foreldrafélagsins er foreldrafelag@skautafelag.is.
Stjórn foreldrafélagsins er skipuð eftirfarandi foreldrum:
Aðalheiður Gísladóttir
Gígja Sigurðardóttir
Hrönn Hilmarsdóttir







